Elín orðin Mamma

Elín

30.05.2006 18:30:50 / Elín

Hætt

Ég er hætt að blogg hérna verð bara með síðuna á Barnalandi.

http://www.barnaland.is/barn/44532


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 14:28:45 / Elín

Smá um stjörnumerkin

 Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti,
 góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp
 skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og
 slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu
 einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.


 Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður
 og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar
 um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki
 úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en
 stífluð rotþró.


 Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf
 á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð
 járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem
 þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum
 þínum í blaður og óþarfa.


 Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi
 og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla
 og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í
 drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og
 upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll,
 þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.


 Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin
 málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar
 á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er
 augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir
 eitthvað, þá gengur þú of langt.


 Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í
 heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei
 neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en
 gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert
 stressuð taugahrúga.


 Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur,
 en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og
 ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það
 loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur
 og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.


 Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur,
 færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og
 hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu
 og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt.
 Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.


 Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu,
 en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með
 að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig
 þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú
 í verkefni sem þú ræður ekki við.


 Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki,
 fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og
 segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og
 þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að
 breiða yfir með titlum og merkjavöru.


 Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og
 alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað
 hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður,
 ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun
 alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.


 
 Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki
 hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að
 fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er
 ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert
 sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 11:26:09 / Elín

Lasin :(

Sæl veriði gott fólk. Það er bara búið að vera ágætis helgi hjá mér. Ég vogaði mér að kikja á ballið með Á móti sól, og fór snemma heim því mér leið ekkert vel. Þegar ég vaknaði á sunnudaginn þá var ég orðin lasin og er búin að vera bilast, ég fékk sko allan pakkann er með hita, beinverki, magapínu, og elska wcið reglulega ój ój ój. Þannig að ég verð bara heima og ætla að sjá til hvort ég fari á morgun í vinnu, ætla nú að vona að ég komist ég nenni þessu ekki.
En ég nenni ekki að skrifa meira hérna þannig að ég bið að heilsa bæbæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 14:15:57 / Elín

Gleðilega Páska

Sæl veriði fólk vildi óska ykkur bara Gleðilega páska og hafiða sem allra best um páskana ekki borða yfir ykkur.

Kveðja Elín Þóra Og bumbugullið:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 21:23:44 / Elín

Góðir kostir yfir því að vera kona;);)


Góðir kostir yfir því að vera kona;);)

...Þú getur gert fleira en eitt í einu

...Ef þú ert með bólur geturðu málað yfir þær

...Þú getur afsakað allt með því að það sé sá tími mánaðarins

...Þú gengur fyrir í þau störf sem þú og jafnhæfur karlmaður sækja um

...Þér er frekar fyrirgefið ef þú lætur einhverja vitleysu út út þér

...Ef þú prumpar í bíó grunar þig enginn

...Þú borgar lægri skatta en karlar (ert að vísu með lægri laun)

...Þú ferð fyrst í björgunarbátana

...Þú mátt keyra eins og hálfviti

...Það finnst engum skrítið þótt þú hangir langtímum saman inni á klósetti

...Þú lifir lengur

...Þú manst hvenær allir eiga afmæli

...Ef þér gengur illa í vinnunni geturu hætt og farið heim og eignast börn

...Þú getur gengið í bæði kjól og buxum

...Ef þú missir hárið og þarft hárkollu fattar það enginn

...Þú getur farið staurblönk á stefnumót

...Þér er hjálpað ef það springur á bílnum

...Þú getur tekið vinkonu þína með á klósettið

...Þú færð börnin ef þú skilur

...Þú getur saumað fötin á þig án þess að vera talin furðufugl

...Þú getur eignast barn

...Það eru opnaðar fyrir þér dyr

...Þú pissar ekki út fyrir

...Þú þolir sársauka betur


 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 10:28:04 / Elín

Ragna Kristín er yndi

Jæja ég sem er búin að vera duglega að segja hvað ég sakni henni Rögnu vínkonu mikið.Þá kom mín bara öllum á óvart og kom til eyja í gær. Ég vissi ekkert hvað á átti að segja þegar hún kom níðrí búð,Þannig að eina sem ég sagði við hana var.( Hvað ert þú að gera hér átt þú ekki að vera heima að læra), voða góðar mótökur en mér finn geðveikt að hún sé komin í heimsókn og þá verð ég bara að drulla mér í heimsókn ehve tíman þegar hún er búin með Skólan.Ég er ekkert búin að fara í bæinn síðan ég átti afmæli  18 nóvember 2005, Það er komið alltof langt síðan enda mikið búið að ské á meðan í lífini mínu.

En yfir í annað hún Esther átti gullfallegan Strák kl Eitt í nótt.

Og vilja óska hennar fjölskyldu innilegar til hamingju með Prinsinn.

En ég ætla að fara að taka til 8| veriði blessuð og sæl


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 20:00:54 / Elín

Takk takk

Takk fyrir það þið sem voruð að frétta með óléttuna mín.Þetta verður og er alveg æðislegt. En annar er bara allt það fína að frétta af okkur. Er bara hress og allt,Smá ógleði en ekkert til að kvarta um:D.

En það er eitt sem mig langar að deila með ykkur.

Hafi þið ehvern tíman lent í því á þessu msn að það komi bara ehvað fólk sem þú þekkir ekki rass og vill fá að vera á msninu þínu.

Ég lenti í þessu um daginn og mér finnst þetta frekar krípi.Veit ekkert hvar þetta fólk fær msnið mitt, Ég nebblega þoli ekki að tala við ehvað fólk sem ég þekki ekki, er nefnilega svolitið feimin. Þannig mig langaði nú bara að dropa þessu hérna niður og spyrja ykkur.

En ég er farin blessó eins og Ragna mín segir :D

Ragna mín SAKNA ÞÍN GEÐVEIKT MIKIÐ


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 14:02:13 / Elín

jæja got fólk hér er smá blogg

Verið sæl og blessuð þeir sem koma hingað inn,Veit ekki hve margir það séu. En eins og þið sem þekkið mig þá er ég sem sagt ólétt og má alveg tala um það núna. Já við eigum von á litlu kríli í September og er ég ekki eina sem er ólétt í minni fjölskyldu því ég var að fá að vita að besta frænka mín er líka ólétt sem er bara æðislegt.Og við erum settar á báðar í September.Verðum sem sagt með góða bumbu á Þjóðhátíðinni.:D

En það er lítið sem ekkert að frétta af okkur hérna við erum bar alltaf að vinna eins og geðsjúklingar. Það er kannski bara sí ástæða sem er að ég er ekkert búin að vera að blogga maður vinnur baara og sefur.

En þá er þessu bloggi núna búið í bili bið að heilsa blessó eins og hún Ragna mín mundi segja.

Ragna ég sakna þín alveg rosalega mikið love you :lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 19:59:29 / Elín

Leti leti leti

Ég er ekki í stuði til að blogg er bara löt og latari þannig að ég skrifa ehvað hérna inn þegar letin er komin yfir mig.

 kveðja Elín Þóra


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 21:54:18 / Elín

Klukk

Fjórar staðir sem ég hef unnið á
· Skálatúni
· Vöruval
· Aktu taktu
· Axeló

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur
· 10 things I hate about you
· Shes all that
· How to lose a guy in 10 days
· Bridget Jones

Fjórir staðir sem ég hef búið á
· Kirkjubæjarbraut
· Brekastíg
· Starfsmannahúsi Skálatúni
· Hásteinsvegur

Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi:
· Lost
· Sex and the City
· OC
· C.S.I.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
· Danmörk
· Portúgal
· Glasgow
· Dublin

Fjórir geisladiskar sem ég get ekki verið án:
· Hlusta eiginlega bara á skrifaða diska eða útvarpið

Fjórar síður sem ég skoða daglega:
· msn
· Blogg


Fjórar íþróttagreinar sem ég hef lagt stund á:
· Sund
· Jóga
· Erobik
· Fimleikar í smá tíma

Fernt matarkyns í uppáhaldi:
· fondú                                                                                             · Pizza
· Hryggur
· Big mack

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á:
· Vestmanneyjar
· Sólarlönd
· Skálatúni
· Og bara hérna heima hjá mér

Fjórar manneskjur sem ég vill klukka

Frikki. Lilja Syst. Steinunn Sif. Ester bergs frænka :P:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 12:57:43 / Elín

Leti leti

Sæl veriði gott fólk eins og þið hafið kannski rekist á þá hef ég ekki nennt að blogg neitt núna. Ég er bara búin að vera vinna og ehvað þreytt þegar ég kem so heim. En það er allt það fína að frétta af mér. Ekkert neitt sem er ehvað búið að gerast hjá mér.

En ég hef ekkert að segja neitt meir þannig ég segi bara bleessó:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 18:24:58 / Elín

Sæl veriði fólk

Það er allt  það fína að frétta af mér. Bara skítakuldi hérna á eyjunni, ég er svona í ekki einu sinni 5 mínutur að labba til og frá í vinnuna því marr setur allt í botn til að frosna ekki,Eða það má segja það. Annar er ekkert að frétta bara ein heima og láta sér líða ágætlega en þetta er samt frekar lónlí líf.

Ég er að spá í að fara í smá átak og labba mikið núna og reyna að synda líka,Það er fín hreyfing sem maður fær +ur því ,enda ´ætti ég alveg losa mig við ehver kíló,fitnaði aðeins of mikið um jólin og ekki búin að vera dugleg að hreyfa mig.

En ég er hætt´í bili við heyrumst bara:P


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 19:28:38 / Elín

Ég er einmanna alein heima

Blessuð veriði. Voða er leiðinlegt að vera alein heima.Hann Arnar er farin til Reykjavíkur og verður í  viku.Hann fór í morgun og mér er svo búin að leiðast að það er ekki fyndið.Hann er að fara vera íslökkviliðinu í  viku á reykjavíkursvæðinu.Og ég geri ekki annað en að kvarta og kveina.En ég er bara að prjóna á fullu og er það bara ágætt,Þá líður þetta ehvað.:S

En ég var að vinna í gær það var Þorrablót hjá eldriborgugum og mikið var gaman að sjá þau hvað þau skemmta sér vel.Og er gaman hjá þeim.

En ég hef ekkert að segja neitt meira í bili þnnig að ég bið að heilsa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 12:27:31 / Elín

Nýtt útlit

Sæl veri þið fóks. Það er bara komið nýtt útlit hjá mér ég fór í klippingu og breytti um klippingu er komin með hálf stutt hár eða það nær ekki á æxlir og er ég mjög ánægð. Ég fór til hennar Syrriar í hárfínt og er hún mjög góð.Svo er það helgin,Frikki kom í gær og horfði á Idol með okkur og Arnar og hann fengu ség bjóra.og Arnar svo líflegur að hann svaf bara meðan gesturinn var hjá okkur.En ég er að fara vinna í Alþýðuhúsinu í kvöld það eru Eldriborgarar með þorrablót þar og verður nú gaman að sjá eldrafólkið skemmta sér,Þá veit maður hvernig við verðum eldri:D.

En ég hef svo sem ekkert meira að segja í bíli þannig að ég bið að heilsa ykkur:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 18:18:47 / Elín

Jæja nú ætla ég að vera

Hæ hæ gott fólk við Arnar vorum að kaupa okkur nýtt sófasett og er það geggjað flott,En það var pínu erfitt að koma því inn í íbúðina er hann Frikki elsku vinur okkar  var  svo rosalega góður að hjálpa okkur. Takk ÆÐISLEGA Frikki þú ert æðislegur;).

En ég Elín Þóra ætla að vera svo duglega að ég er að fara prjóna peysu og verður gaman að sjá hversu dugleg ég er8|. Þetta mun koma alveg í ljós aldrei að vita nema ég geti klárað hana:S.

En það er voða lítið að frétta af mér er bara alltaf að vinna og er svo bara heima.Ef þið viljið og þið sem getið þá er alveg óhætt að kikja í heimsókn til Okkar.:D

En ég ætla að hætta að skrifa  og bið að heilsa  bless   bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6